Ég hjálpa fyrirtækjum að ná stjórn á sjóðstreymi, bæta áætlanagerð og taka betri rekstrarákvarðanir - án þess að þau þurfi fjármálastjóra í fullu starfi.
Sömu stefnumótandi verkefni og fjármálastjóri í fullu starfi, en í minna umfangi: sjóðstreymisstýringu, fjárhagsáætlanir, afkomu- og arðsemisgreiningu, fjármögnun og undirbúning ákvarðana fyrir eigendur og stjórn. Ég tek ekki að mér bókhald eða reglubundin skil - bókarinn þinn heldur því áfram.
Þegar fyrirtækið er orðið of stórt til að stýra fjármálunum í Excel á kvöldin, en of lítið til að standa undir fjármálastjóra í fullu starfi. Dæmigerð tilefni: sjóðstreymið er þröngt, áætlanir standast ekki, banki eða fjárfestir kallar eftir gögnum, eða eigandinn er sjálfur orðinn flöskuháls í tölunum.
Ekki sömu viðveru. Þú færð hins vegar reynslu úr fjölda fyrirtækja og atvinnugreina, og tímanum er varið í þau verkefni sem hafa mest áhrif á afkomuna.
Umfangið ræðst af þörfinni - frá einum degi í mánuði upp í þrjá daga í viku á skrifstofunni. Ég vinn bæði á staðnum og í fjarvinnu. Mánaðarlega færðu uppfært sjóðstreymi, frávikagreiningu gagnvart áætlun og fund um stöðuna og næstu ákvarðanir. Þar á milli er ég aðgengilegur þegar mál koma upp.
Já, en samanburðurinn veltur á umfangi. Fjármálastjóri í fullu starfi kostar 22-24 m.kr. á ári með launatengdum gjöldum, hlunnindum og orlofi, óháð álagi hvers mánaðar.
Fast mánaðargjald eftir umsömdu umfangi - kostnaðurinn er þekktur fyrirfram og breytist ekki milli mánaða. Engin launatengd gjöld, veikindaréttur eða orlof, og virðisaukaskatturinn af reikningi nýtist sem innskattur hjá þeim sem eru í virðisaukaskattskyldum rekstri.
Endilega hafðu samband með því að senda tölvupóst eða bóka spjall.