.png)
Sveigjanleg og hagkvæm lausn að þörfum þíns fyrirtækis.
Flest lítil og meðalstór fyrirtæki þurfa ekki fjármálastjóra í fullt starf. Þau þurfa hins vegar að vita hvert lausafé stefnir næstu sex mánuði, hvaða vörur skila raunverulegri framlegð og hvað gerist ef stærsti viðskiptavinurinn hættir. Þar kem ég inn.
Hvað þú færð
Hvað er ekki innifalið
Bókhald, launavinnsla og reglubundin skil. Ég vinn með þínum bókara eða endurskoðanda - ég kem ekki í staðinn fyrir þá. Fókusinn er á það sem gerist eftir að tölurnar eru komnar í kerfið.
Fyrirkomulag
Fast mánaðarlegt umfang - allt frá einum degi í mánuði upp í þrjá daga í viku - eða afmarkað verkefni með skýrri afhendingu. Þú borgar fyrir þekkinguna en ekki stöðugildið.
Fyrsta skrefið
Klukkutíma samtal, þér að kostnaðarlausu. Þú lýsir stöðunni, ég spyr þeirra spurninga sem skipta máli. Í lok samtalsins veistu hvar veikleikarnir liggja í fjármálastjórninni og hvað kostar að laga þá. Sú greining er þín, hvort sem við vinnum saman eða ekki.
.png)
Endilega hafðu samband með því að senda tölvupóst eða bóka spjall.