Geir Kristinsson

Ég hef starfað við fjármál í 10 ár og komið að rekstri fyrirtækja með veltu frá 50 m.kr. upp í 3 ma.kr.

Ég hef starfað sem fjármálastjóri hjá fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu, fasteignaþróun og smásölu. Auk þess hef ég komið að stofnun og rekstri bæði eigin fyrirtækja og annarra.

Ég hef víðtæka reynslu af ráðgjöf og stjórnunarstörfum. Starfsferill minn spannar margar atvinnugreinar, þar á meðal fjármálaþjónustu, ferðaþjónustu, ráðgjöf og fasteignamarkað. Þannig hef ég öðlast dýrmæta innsýn í ólík svið atvinnulífsins.

Sérhæfing mín er viðskiptagreind, arðsemisgreiningar, fyrirtækjafjármögnun, lausafjárstýring, fjárhagsáætlanagerð, verðmöt og rekstrarumbætur.

Ég nota Claude gervigreind daglega í greiningum og vinnuferlum. Það þýðir hraðari úrvinnslu og meiri dýpt á hverja unna klukkustund.

Ég er með B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á reikningshald frá Háskóla Íslands og MBA frá Lynn University í Bandaríkjunum með áherslu á fjármála- og fjárfestingastjórnun. Ég er einnig handhafi verðbréfaréttinda.

Hafðu samband:
geir@gkfjarmal.is
6943289

Þarftu frekari upplýsingar?

Endilega hafðu samband með því að senda tölvupóst eða bóka spjall.

Shape 04Shape 05
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.